Saturday, November 12, 2016

Að vera ábyrgur neytandi

Ég er búin að vera að velta þessu fyrir mér í dágóðan tíma - alveg löngu áður en mér datt í hug að deila þessu með öðrum.

Hvern eða hverja er ég að styðja þegar ég er að versla t.d snyrtivörur sem eru mínar ær og kýr? Þegar ég versla mér snyrtivörur er það fyrir mig og í förðunarkittið mitt. Þar sem ég vil geta valið skynsamlega fyrir sjálfa mig og eins viðskiptavini mína þá er ég oftast búin að googla og fara á youtube áður en ég ákveð að viss vara verði fyrir valinu og reyni þannig að taka upplýsta ákvörðun hverju sinni.

Jú ég er komin yfir þrítugt með mann, barn og fullt af ábyrgð og get því ekki verið að gera hvatvís kaup. En það sem ég er að tala um er, er ég að taka upplýsta ákvörðun um frá hverjum ég er að versla hverju sinni. Þá á ég við hver stendur á bakvið fyrirtækið eða verslunina sem ég ákveð að versla við? Stundum, já, þá veit ég að ég er að styðja gott fyrirtæki, oftast er það einstaklingur með stækandi fyrirtæki og þar er unnið af áhuga og með hjartanu - ekki af eintómri græðgi.
Hver er forgangsröðunin? Er eytt mikið í endalausar auglýsingar? Hver er þjónustan við viðskiptavini - er hún persónuleg og góð og er hægt að fá prufur eins og á t.d kremum?
Ég fór með systir minni í vinsæla verslun og hún ætlaði að fá sér meik. Ég spyr afgreiðslustúlkuna hvort að hún geti ekki fengið prufu af því? “Nei við gefum ekki prufur auk þess eigum við ekki svona lítil box.” -  “Ókei, en ef ég kem bara með svona box?” - “Nei við gefum ekki prufur.” Já þarna var 16 ára systir mín að fara að eyða 9 þúsund í meik hjá þeim og það var ekki hægt að fá eina litla prufu!

Í byrjun árs var ég með námskeið í húðumhirðu fyrir unglingadeildina í skólanum hér fyrir vestan. Ég hafði samband við þessi helstu fyrirtæki sem ég vissi að væru með góðar húðvörur, sendi þeim póst og greindi frá því hvað stæði til og spurði hvort að þau hefðu tök á því að senda mér smá prufur sem ég gæti látið þau hafa að loknu námskeiði.

Það tóku flest allir alveg svakalega vel í þetta og við fengum fullt af prufum og jafnvel vörur í fullri stærð! Ansi rausnarlegt þar sem ég var ekkert að fara að auglýsa þetta á snapinu eða á bloggi. Eitt fyrirtækið hafði orð á því að þau vildu alltaf styðja unga fólkið þegar það kæmi að húðumhirðu sem er ótrúlega flott! Ég fékk líka eitt svar þar sem að viðkomandi sagðist ekki hafa tök á því að senda prufur- sem er skiljanlegt og ég þakkaði þeim því bara fyrir svarið og óskaði þeim góðs gengis.

Síðar í vikunni horfði ég á alla helstu snaparana hér á Íslandi fá mjög veglegar gjafir frá þessu sama fyrirtæki - og þetta voru engar smá prufur! Þarna sá ég líka mjög skýrt hver forgangsröðunin var hjá þeim.
Tilgangurinn með þessu bloggi er ekki að sverta orðspor eins né neins. Mig langar bara að vekja ykkur til hugsunar um þessi mál og hvetja ykkur til þess að taka upplýsta ákvörðun áður en þið eyðið peningunum ykkar.
Ég kýs að versla við fyrirtæki sem:


  • Veitir viðskiptavinum sínum persónulega og góða þjónustu
  • Er með góðar vörur á sanngjörnu verði
  • Veitir manni frelsi til þess að geta ákveðið hvaða vara sé rétt fyrir mann - með því t.d að bjóða uppá prufur.
  • Hræðist ekki samkeppni eða talar niður til annara fyrirtækja


Helga Þórey

No comments: